20.Silungastrengur - Hættulegt Vað
20.Silungastrengur - Hættulegt Vað
Category

Activity

Age requirement

All ages

Message from Laxá í Aðaldal

Hér getur verið lax frá enda Júlí til loka tímabils en það er alltaf vænn urriði. Athugið að vaðið getur verið hættulegt og skal alls ekki fara þangað óvanur ef enginn er með þér.

Mikilvægt er að vaða beint út að strengnum og vaða sandinn sem er þar niður, það er bara efsti parturinn sem er vafasamur en það þarf að passa að vaða sömu leið til baka í land þar sem að mikil drulla er við landið sem þú sekkur í.

Eftir að þú ert kominn fram hjá efsta partinum er vaðið einfalt og einungis hversu hávaxinn þú ert hversu langt þú kemst, en þú þarft að vaða sömu leið til baka svo gott er að vera með háf á sér til að háfa fiska útí ánni.

Þetta er gull fallegur strengur sem að Fiskurinn liggur í , er oft ofarlega en getur verið langt niðrá breiðu.