Staðurinn byrjar í beinu framhaldi af Dýjaveitum. Það er strengur með landinu og fiskurinn liggur fyrir utan hann. Það er lítið hægt að vaða en stundum geri ég það til að ná stönginni yfir strenginn uppá að halda betra reki á flugunni.
Hægt að veiða staðinn allveg niður að Syðsteyjarkvísl en efri parturinn yfirleitt betri staðurinn.